|
|
 |
Monday, August 22, 2005
Öll skrif hafa verið færð yfir í Velvakanda Morgunblaðsins.
Góðar stundir
Posted at 12:42 am by liebekosung
Permalink
Sunday, August 21, 2005
Vil bara biðja þá sem eru að fylgjast með mér að hætta að birta heilsíðugreinar um mig í Mogganum. Og já, síðan veit ég. Ég veit.
Posted at 10:10 pm by liebekosung
Permalink
Monday, June 20, 2005
Fóstrið 2. þáttur: Leiðangurinn
 Skerandi sárskauki í vinstri fæti nægði ekki til að draga úr undrun þess við að horfa framan í glaðhlakkandi andlit drengs um tvítugt í stað rauðleita hylkisins sem venjulega umlauk það. "Hmm, þetta er tæplega móðurkviðurinn", hugsaði fóstrið með sér um leið og nístandi kuldrahrollur staðfesti grunsemdir þess. Fóstrið tók að rifja upp það síðasta sem það mundi. "Látum okkur nú sjá", sagði það yfirvegað við sjálft sig (enda mátti það síst við því að missa stjórn á sér). "Ég ákvað að kanna híbýli mín enn frekar", hélt það áfram, "og hélt suður í kviðinn." Skyndilega stóð atburðarásin ljóslifandi í tveggja mánaða huga þess: það hafði háð hatramma baráttu við naflastrenginn á leiði sinni um kviðinn en náð á endanum að slíta sig laust. Þá tók fallið við. Að því virtist endalaust fall í gegnum líkamsvefi, taugaenda og kynfæri hýsilsins. Fóstrið mundi eftir dauðahaldi sínu í leghálsi verðandi móður þess þar til það sleppti loks takinu og myrkrið tók við.
Posted at 01:23 am by liebekosung
Permalink
Monday, June 13, 2005
Fóstrið 1. þáttur: Fundvísi
 "Andar það?", hugsar hann vongóður með sér. Bláleit, slímug bringan (eða það sem yrði bringan) reis og hneig með jöfnu millibili. "Svo það var lifandi!" Í öllu kætinu fipaðist honum og það lá við að hann missti það en þökk sé snöggri hreyfingu fram á við hélt hann nú kyrfilega um vinstri fótinn á fóstrinu. Þetta ætlaði greinlega að vera einhver allra mesta lukkuvika síðustu ára; um daginn hafði honum áskotnast hitakassi í sæmulegu ástandi og ekki má gleyma matreiðslubókinni sem hann fann á haugunum. Og nú þetta: vel á sig komið fóstur (þó hann hefði að öllum líkindum líklega brotið annan fótinn á því við björgunina rétt áðan) og það sem betra var, þjónustan hafði ekki innheimt það. Það þýddi aðeins mistök og þau gerði þjónustan aldrei. Nema nú. "Lukkuvika", sagði hann upphátt við sig og blístraði af ánægju. Loksins myndi hann geta boðið Aðalheiði nokkuð sem slæi út gjafir hinna vonbiðlana. "Nei, þeir slá ekki út fóstur", bætti hann lymskufullur við sjálfan sig og stakk því gætilega í vasann, "ekkert gerir það".
Posted at 03:32 pm by liebekosung
Permalink
Monday, May 16, 2005
Áþreifanleg biturð vegna próflesturs
 Herbergið er lýst upp af flöktandi ljósaperu sem hangir niður úr loftinu. Tveggja daga svitalykt fyllir loftið. Einlæg hrifning barns einkennir teikningar og myndir á veggjum af Angel-lógóinu, ýmist með brosandi hárlausan Óla Prik kall við hlið sér eða eitt og sér. Frá baki hrörlegs skrifstofustólsins sjást aðeins þrjú stutt, hvít hár gægjast upp. Í sjálfum stólnum rennir smár maður einbeittur á svip yfir verk sem hann er við að leggja lokahönd á. Aðeins ein setning, ein barátta enn við málfræði- og stafsetningareglur og þá er markmiði hans náð. Hann slær hana inn, "...þótt samvirknikenningarsinnar findist anað". Því er lokið, hugsar hann með sér, lítur til hliðar á fyrri útgáfuna (þá sem hann hafði fengið fleiri kvartanir yfir en kærur), viss um að orðaskipti um innsláttar- og málfræðivillur heyri sögunni til. Við fagurgrænan bakgrunn stendur efst stoltum stöfum: "Hvernig veit ég að ég veit" og neðst "Björn Bergsson".
Posted at 11:51 pm by liebekosung
Permalink
Sunday, May 08, 2005
Rétt eins og býflugur, lóur og börn þakin rjómaís verða óreglumenn sýnilegri á sumrin. Sumir eru  drykkfelldir, aðrir geðveikir og enn aðrir berjast við báða kvilla en allir eiga þeir sameiginlegt að vera til ama. Á heitum sumardegi verða óreglumennirnir áþekkir ágengum skordýrum, svo sem geitungum, og sækja að vegfarendum í leit að sígarettum, áfengi og fé. Hver kannast ekki við þá óþægilegu tilfinningu að sitja í góðra vina hópi, oft með alla þrjá fyrrgreinda hluti með í för, og njóta blíðunnar þegar útigangsmaður beinir sljóum augum sínum að hópnum og heimtar eigur hans. Ýtni drykkjumannsins verður að lokum svo mikil að erfitt er að láta ekki undan óskum hans eða réttara sagt nánast ómögulegt enda hefur hann alið með sér aðferðir til að fá sínu framgengt; hótanir um barsmíðar og nauðgun. Ritstjórar þessa rits eru auðvitað einnig fórnarlömb þessara vammlausu manna og vart líður ánægjuleg stund í miðbænum án þess að óreglumenn spilli henni. En í stað þess að vera meðvirkir og láta árásir útigangsmanna yfir sig ganga hafa þeir snúið vörn í sókn og hannað aðferðir til að sporna gegn hegðun heimilislausra. Eftirfarandi eru nokkur heilræði í baráttunni gegn þeim sem birtast munu í sjálfshjálparbæklingnum "Vörn gegn vágestum: að yfirbuga og flæma burt óreglumenn". 1. Vit óreglumanna eru áþekk dýra svo auðvelt reynist að blekkja þá. Óreglumaður þekkir ekki mun á eitri og áfengi - nýtið það. 2. Ef átt er í höggi við heimilislausan mann með ranghugmyndir er gott að ýta undir þær. Verið sannfærðir þegar hann segir yður frá þætti sínum í friðarviðræðum við lok seinni heimstyrjaldar og fullvissið hann um að hann geti hæglega fengið fé fyrir íhlutun sína (óreglumenn eru nú einu sinni eftir allt fégráðugir) ef hann leiti aðeins áheyrnar hjá réttum aðilum. Jafnframt skuluð þér fræða hann um svipaða baráttu erlends stórmennis og áður en þér vitið af hefur óreglumanninum tekist að lauma sér um borð í Norrænu og heldur til samstarf við áðurnefnd stórmenni í Færeyjum. 3. Hafið alltaf einstakling með í för sem þér eruð tilbúnir að fórna í gin vitfirrings og þannig bægja honum frá. 4. Klæðist ávallt ljósu. Litróf óreglumanna er álíka óheilbrigt og líkami þeirra og augu þeirra nema ekki ljóst. Lesendur eru hvattir til að þróa sínar eigin aðferðir í baráttu við heimilislausa.
Posted at 07:49 pm by liebekosung
Permalink
Sunday, February 13, 2005
 Að stefna að og viðhalda ferskleika er göfugt markmið og er það síst á færi allra. Ferskleikinn og hugmyndir manna um hann geta verið æði mistækar en líf án hans er snautt líf og því allar tilraunir gerðar til nýsköpunar jákvæðar. Örlög þessa rits mætti jafnvel rekja til þess hve mikil þrekraun það er að vera ferskur á síðum netsins. Það hefur nefnilega sýnt sig að lauf nýjunganna þegar kemur að ritstörfum á vefnum falla fljótt til jarðar. Þess vegna er ágætt að leita nýrra leiða í öllum skrifum þar og þessari færslu er ætlað að kynna eina slíka leið. Hún ber nafnið: Leyndardómar leitarvélarinnar. Ofangreind leið er samstarfsverkefni og lágmarksfjöldi eru tveir. Nú, þetta gengur þannig fyrir sig að þátttakendur fara á leitarsíðu (dæmi um vinsæla vél er google-leitarvélin en hún einkar hentug til verknaðarins) og leita að mynd. Sjálf leitarorðin skipta engu þar sem val á mynd er algjörlega undir þátttakendum komið. Eftir að samkomulagi hefur verið náð um mynd kemur að því sem gefur aðferðinni gildi. Þátttakendur virða fyrir sér myndina og rita um hana algjörlega frjálsum höndum. Það má vera stutt saga eða annáll, ef þetta er mynd af einstaklingi má ímynda sér hvað hann hefur fyrir stafni, eins ef þetta er fjölskylda væri hægt að velta upp þeim spurningum hvort faðirinn sé áfengissjúklingur sem heldur fjölskyldunni í heljargreipum með skapofsa sínum og bráðlyndi. Möguleikarnir eru ansi margir. Þetta er gert í engu samráði við aðra þátttakendur. Þegar þessu er svo lokið birta höfundar túlkun sína á myndinni á heimasíðum sínum (gaman væri að samræma birtingardag). Þar kemur í ljós sérkenni hvers og eins hvað varðar ritstörf og vinir, fjölskyla og vinnufélagar geta skemmt sér við að bera saman eigin túlkanir. Útlistun lokið.
Posted at 07:59 pm by liebekosung
Permalink
Tuesday, December 07, 2004
 Nú líður senn að jólum og þá eins og vanalega hugsa bágstaddir sér gott til glóðarinnar og dúkka upp hvarvetna í þjóðfélaginu. Þeir bera fyrir sig veikindi, harm, féleysi og fleira í þeim dúr og heimta jafnframt aðstoð. Auðvitað er slíkt gott og blessað enda hefur góðgerðarstarf yfirstéttarinnar löngum létt andann og friðað marga samviskuna en það er þó einn hængur á. Fátækt fólk á Íslandi á sér nefnilega ekki tilvist. Já, þið lásuð rétt, það þekkist ekki á Íslandi. Þetta eru allir upp til hópa iðjuleysingjar sem liggja allt árið í letimóki uns jólin nálgast og þá fara þeir loks á stjá, ekki ósvipað jólasveinunum, og seilast ofan í vasa duglegra þjóðfélagsþegna. Þetta vita fáir að undanskildum ástsælasta söngvara þjóðarinnar, Kristjáni Jóhannssyni. Hann hefur séð í gegnum svikamyllu letingjanna og snýr nú vörn í sókn. Kristján beitti þá "fátæku" eigin bragði um daginn og stakk því fé sem ætlað var krabbameinssjúkum börnum í sinn eigin vasa, en eins og allir vita þá er krabbamein aukaverkun þess að látast vera ógæfumaður. Lesendur, Kristján hefur tekið forrustuna og það er okkar að fylgja. Látum ekki ginnast af vélabrögðum bágstaddra, eyðum í okkur sjálf. Gleðileg jól.
Posted at 12:15 am by liebekosung
Permalink
Friday, October 15, 2004
Varðandi hægðir og útgefin skjöl

Eftir útgáfu síðasta Fréttapésa sáum við hvar nokkrir Pésar höfðu verið rifnir, sumir brenndir og nokkrum skilað til baka. Kvartað var yfir skorti á málefnanlegri umræðu og talað um að ,,grínveldið stæði mjög veikt.” Einnig vildu nokkrar kvenréttindastúlkur meina að þetta blað hafi verið fullt heimskulegrar og órökstuddrar kvenfyrirlitningar. Þetta hryggði okkur mjög þar sem við erum allir með tölu fylgjandi feminisma enda var síðasta blað, ef nánar er að gáð, kvenréttindablað og mjög líklega einhver mestu sigur kvenna á síðustu 100 árum. Það sem við gerðum var að við skrifuðum alls kyns karlremburit og birtum tæpar myndir og auðvitað fannst öllum þetta ömurlegt. Þetta var nefnilega gert til þess eins að sýna fram á fáránleika kvenfyrirlitningarinnar; hversu heimskt og rangt það er að sýna konum fyrirlitningu með áðurfrágreindri hegðan. Blaðið hafði því mjög sniðugan og málefnalegan tilgang og þökkuðu greindari feministar skólans okkur fyrir þessa mikilvægu sýnikennslu á meðan hinar fáfróðu köstuðu í okkur skít úr eigin sveitta rassgati.
Þið hljótið nú að sjá lesendur að síðasti Pési var mjög líklega vitsmunalegasta rit sem nokkurn tíma hefur komið frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þær stúlkur sem gáfu skít í hann eru þar af leiðandi á móti vitsmuna- og málefnanlegri umræðu. Því segi ég ykkur lítt þenkjandi en mikið gagnrýnandi stúlkur: Verið heimskar heima hjá ykkur.
Posted at 11:53 am by liebekosung
Permalink
Thursday, September 16, 2004
Ritstjórn óskar eftir barni í fullt starf. Barnið þarf að vera á aldrinum 3 til 4 ára  og vel á sig komið. Það er einnig algjört skilyrði að barnið hafi trygga leikskólavist og sömuleiðis að það sé reiðubúið að vera í umsjón eins foreldris, sem yrði þá að öllum líkindum annar ritstjórinn. Barnið verður að vera tilfinningalega í stakk búið til að takast á við fjöldamörg andleg áföll, sem dæmi má nefna vanrækslu af hálfu forráðamanns, algjört skeytingarleysi gagnvart tilfinningum og löngunum þess og fleira í svipuðum dúr. Barninu má alls ekki bregða þó því sé gleymt á hinum ýmsu stöðum, svo sem leikskóla, verslunarmiðstöðvum, gangstéttum og knæpum. Eins og áður segir verður líkamlegt ástand barnins að vera stöðugt og þarf það að geta þolað sígarettureyk og brandara með bjórsopa (sem leiðir vafalaust til þess að barnið bragði þónokkuð oft áfengi). Það má alls ekki vera auðvelt að koma barninu í pössun svo tryggt sé að forráðamaður þurfi ávallt að hafa það meðferðis. Barnið þarf einnig að vera kunnugt hátterni drykkjumannsins og vera jafnframt skilningsríkt gagnvart hegðun hans. Starfstími barnsins yrðí fram að 9 ára aldri. Umsóknir berast með faxi. Kveðjur, Ritstjórn
Posted at 06:32 pm by liebekosung
Permalink
|